Hugleiðslu- og Slökunarnámskeið á veraldarvefnum

Námskeiðinu fylgja 4 hljóðupptökur með leiddum Slökunaræfingum, Hugleiðslu og róandi Öndunaræfingu. Upptökurnar færðu sendar og getur hlaðið niður á símann þinn eða í tölvuna - og hlustað hvenær sem hentar þér.  

Unnur Arndísardóttir jógakennari ásamt bróður sínum Andrési Lárussyni tónlistarmanni, hefur útbúið lítið Slökunarnámskeið á veraldarvefnum. Um leið og þú skráir þig færðu sendar 4 hljóðupptökur með leiddum Slökunaræfingum.
Þessar upptökur getur þú svo geymt á tölvunni þinni og hlustað á hvenær sem hentar þér. 


Hljóðupptökurnar sem fylgja eru Slökunaræfingar, Hugleiðsla og öndunaræfing.
Námskeiðið inniheldur einnig leiðbeningar í rituðu máli, sem veita örlitla innsýn í hugleiðslu og slökun, og hvernig við tileinkum okkur þessar aðferðir í daglegu lífi. 

Unnur Arndísar jógakennari leiðir æfingarnar, en slökunartónlistin er eftir bróður hennar Andrés Lárusson tónlistarmann. 

Slökun og Hugarró hentar öllum þeim sem hafa áhuga á að færa meiri ró og kyrrð inní líf sitt. Með leiddri slökun og hugleiðslu fær hugurinn frið, og líkaminn nær að gefa eftir og slaka. 

Fáðu sendar hugleiðslur sem hægt er að gera hvar sem hentar þér og á þeim tíma sem henta þínu lífi. 

Námskeiðið kostar 3000 kr

Unnur Arndísardóttir kennir mjúka blöndu af Hatha og Raja Yoga, með líkamstöðum, öndun og hugleiðslu. Þar sem áherslan er lögð á innri frið og ró.
Unnur hefur stundað yoga frá árinu 1993 en útskrifaðist sem Yogakennari frá Jóga-og blómadropaskóla Kristbjargar árið 2010. Unnur lærði Yoga þerapíu í Transformational Hatha Yoga skólanum á Grikklandi árið 2016. Nýverið fékk Unnur einnig kennsluréttindi í Restorative Yoga frá Yoga Somatics. 

Andrés Lárusson tónlistarmaður semur ljúfa og notalega slökunartónlist, sem býr til hið fullkomna rými til slökunar. Með tilfinningu og alúð veitir hann tónlistinni það flug sem þarf til að öðlast hugarró og frið. 

~Uni~
Unnur Arndísar
www.uni.is
[email protected]